Flottustu kennaranemarnir í KHÍ

Glósur, glærur, verkefni og fl.

24.08.2008 18:06:26 / hehardar

Hittingur - Kaffihús

Jæja hvað segiði gott fólk !!!

Eruð þið ekki búin að hafa það mega gott í sumar?

Var bara svona að pæla (ef einhver kíkir á þessa síðu ennþá) hvort við ættum ekki að fara að skella í einn hitting.

Hvað segið þið um að hittast á kaffihúsi?

Mér finnst allavega vera kominn tími á hitting sko :)

væri ekki líka fínt að safna saman e-mailum hér, allavega hjá þeim sem eru búnir að breyta um mail, svo að endilega setjið mailin ykkar í komment.

kveðja
Helga Jóhanna sem saknar Kennó

» 20 hafa sagt sína skoðun

11.06.2008 22:03:19 / draudrau

.....ÚtSkRiFt....

Komiði sæl og blessuð öllsömul!

Nú er útskriftin okkar á laugardaginn og hlakka ég mikið til....
Ég ætla að fagna um kvöldið á Rex og vera með opið hús frá kl.21 til kl.23 og þið eruð öll velkomin! 
Boðið verður upp á hvítt, rautt og öl. Gjafir eru afþakkaðar...

Vonast til að sjá sem flesta.....væri rosa gaman að eiga saman skemmitlega stund þennan dag!

Ef þú/þið ætlið að halda veislu sjálf...og vera með vinum og vandamönnum.....og ætlið í bæinn þá er tilvalið að koma við á Rex...hafa það sem svona ,,hittingsstað,, og svo að sjálfsögðu gera bara allir það sem þeir vilja... En ég veit að það er áhugi hjá mörgum að tjútta ,,eitthvað,,saman..... Sjáumst á Rex....á laugardag....eða hvað?
 Megið endilega segja hvað þið eruð að spá....................

» 5 hafa sagt sína skoðun

15.05.2008 10:30:45 / olbjorns

Próflokadjamm....jamm, jamm...

Sæl öll béin mín.

Nú er síðasti sjens að djamma frá sér allt vit áður en alvaran tekur við...8| og það ætlum við öll að sjálfsögðu að gera á morgun.
Sú hugmynd hefur komið upp að við hittumst áður en farið er niðrí skóla; rifjuðum upp síðustu þrjú ár saman, borðuðum eitthvað gott og fengjum okkur aðeins í aðra tánna.

Ég hef ákveðið að bjóða ykkur hingað heim og held að 17:00 gæti verið ágætis tími svo við getum mætt á réttum tíma í próflokadjammið kl 20.  (við gleymum okkur jú alltaf þegar við hittumst saman). Ég verð með pappadiska og pappaglös og við hreinsum út allt saman áður en við förum þar sem ég er á leið í bústað seinna um kvöldið (og það verður ekki snemma...híhíhí:)

Ég er að hugsa um að panta mat frá Nings þar sem ég hef einu sinni pantað frá Tapassbanum og snitturnar voru e-ð svo sveittar þegar þær eru búnar að standa lengi. Þetta er mín hugmynd:

 

Smárétta- og pinnaveisla 1

Verð 2.190 á mann miðað við 10 manns og fleiri

-Marineraðar kjúklingabringur á spjóti "Teriyaki"
-Svínakjöt á spjóti með Satay sósu
-Wrap með kjúklingi , fersku grænmeti og hoi-sin sósu
-Austurlenskar kjötbollur með Sweet-Chillisósu
-Sushi, ferskt og spennandi með soya og engifer
-Fylltar Indverskar samósur með grænmeti og karrý
-Kókoshjúpaðar risarækjur með hvítlaukssósu
-Borið fram með viðeigandi sósum


 

Þar sem tíminn er frekar lítll þá væri æði að heyra sem fyrst í öllum hvernig ykkur líst á þetta. Ég skal síðan redda þessu ef ég fæ góðar undirtekir:haha:


Minni svo á ballið á NASA seinna um kvöldið. En miðaverð eru litlar 1500 kr í forsölu, en 2000 kr við hurð.  Hægt er að nálgast miða á Nasa þann 15. og 16.maí milli kl: 16:00 til 20:00.

Yours forever
Ólöf

» 18 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 18:18:10 / marghara

Djamm djamm djamm!!!

Það er brjálað djamm framundan bæði núna á morgun og svo aftur næsta föstudag:D
við vorum að fá líka þennan skemmtilega póst frá SKHÍ um djammið 16. maí þar sem Eurovision er þemað og svo á að fara á NASA á ball með Páli Óskari. á ekki að mæta á það? eða hvað segir liðið?

Svo var ég að spá í þarna hitting á undan djamminu hvernig eigum við að hafa það? allavega ef það vantar stað til að hittast á þá á ég auðvita heima hérna við skólan og það er alveg plás fyrir alla þar:D

hilsen

Margrét Rósa


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 17:50:16 / liljtorf

Kveðjuhóf 3.árs nema - skrá sig!!! Treysti á ykkur elsku B-bekkingar...

Kæru samnemendur nær og fjær!

 

Nú er ekki langt í það að við útskrifumst úr Kennaraháskóla Íslands eftir viðburðarík og skemmtileg ár. Það er hefð fyrir því í Kennaraháskólanum að 3. árs nemar kveðji kennara sína fyrir útskrift og ekki ætlum við að vera neinir eftirbátar í þeim efnum! Fyrirhugað er að hafa kveðjuhófið í Fjöru, föstudaginn 9. maí milli kl. 16:00 – 18:00

Hugmyndin er að allir leggi saman í púkk,  1500 kr. á mann fyrir brjóstbirtu og brauðmeti, kennurum og okkur til handa.  Það er ekki amalegt að geta kvatt okkar ágætu kennara almennilega sem hafa staðið þétt við bakið á okkur gegnum námið.

 

Það sem við þurfum að vita er hvort þú ætlir ekki að mæta á þennan einstaka viðburð eða ætlir virkilega að láta hann framhjá þér fara? Mundu að við 3. árs nemar erum einstaklega skemmtilegt og ótrúlega viðfelldið fólk  sem eru að útskrifast á 100 ára afmæli skólans. Þar að auki er gott að geta vitnað og tjáð sig um þennan merkisviðburð við vini og vandamenn þegar fram líða stundir!

 

Skráning fer fram á: liljtorf@khi.is   og vinsamlegast leggja inná reikning 526-26-31618, kt. 100270-4559.  Athugið þar sem þetta er frekar stuttur fyrirvari þá væri meiriháttar ef þið mynduð bregðast hratt við!!!

 

Að samkomu lokinni er hugsunin sú að við nemarnir skemmtum okkur saman áfram fram eftir kvöldi. Hugmyndir eru vel þegnar!

Með von um góðar undirtektir og þátttöku!

Nefndin

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.05.2008 09:58:12 / hehardar

Ærlegt lokasprettsdjamm

Jæja börnin góð... lítill fugl hvíslaði því í eyrað á mér að lokaprófsdjamm í skólanum væri þann 16. maí , ef það er ekki tími til að djamma og djúsa hvenær er hann þá? .....

Finnst að það eigi að vera skyldumæting á þennan merka viðburð...síðasta lokaprófsdjammið okkar vííhúúú

ég bara varla trúi því að ég sé búin að stunda þetta nám í þrjú ár og hvað þá að þetta sé að verða búið .... sorglegt en skemmtilegt í leiðinni...

Er ekki spurning um að gera eitthvað saman fyrir þetta?

Kveðja
Helga sem er alein í skólanum og nennir ekki að læra....

» 9 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 13:31:17 / hannskul

Eurovision-myndbandið :)

Þið verið að horfa á myndbandið :)

http://www.nova.is/Pages/forsida.aspx

Draupnir þú ert æði :)

» 14 hafa sagt sína skoðun

10.04.2008 15:49:40 / marghara

Er ekki komin tími eða???

Sæl Hjartans B-in mín:d
er ekki komin tími á smá hitting hjá okkur eða??? mér finnst svo ótrúlega langt síðan ég hef séð ykkur flest.
En hvað segir fólk um það? á ég að bjóða ykkur öllum heim til mín eftir 29.maí? ég er reyndar að fara í tvö próf en mig langar nú samt að hitta ykkur líka;)
en já hvað segi þið við því að koma til mín í kvöld kaffi?
kveðja Margrét Rósa




» 14 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 11:59:00 / draudrau

Vísindaferð.....þann 11.apríl...


Þá er komið að hinni árlegu vísindaferð.....og er hún tileinkuð okkur 3. árs nemum í ár.. Ég er búinn að skrá mig og hlakka mikið til.....og vona innilega að þið gerið hið sama og að við tökum rækilega á því á saman.....:lol:
Koma svo og skrá sig..................:$

» 13 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 13:42:14 / hannskul

Páskakveðja

Gleðilega páska allir saman :p hafið það sem allra best og borðið nú yfir ykkur af páskaeggjum :)


Kveðja Hanna 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2008 16:01:09 / hehardar

Prins mættur á svæðið

Vildi bara láta ykkur vita að það er kominn lítill prins hjá Rut.

Elsku Rut enn og aftur innilega til hamingju ;)

Kveðja
Helga

» 8 hafa sagt sína skoðun

02.03.2008 19:16:32 / marghara

Takk fyrir mig:*

Takk fyrir bara skemmtilega árshátíð. Við B-inn erum alltaf best enda var þessi árshátíð að mestu komin frá okkar bekk:P og var líka svona vel heppnuð:D
Ég skemmti mér konunglega (kannski ekki að ástæðulausu:P hehe)
enn takk aftur!
kv. Margrét Rósa:D


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 10:28:16 / olbjorns

Skreytum Broadway...

Elsku b-beklingarnir mínir.
Við ætlum að skreyta Broadway kl 11 á morgun. Það væri bara geðveikt ef einhver sæi sér fært að mæta og hjálpa okkur í svona 1 klukkutíma eða svo.
Veit að það er brjálað að gera hjá öllum en margar hendur vinna létt verk og þá geta allir átt smá tíma fyrir sig fyrir árshátíð:haha:

En annars sjáumst hress annað kvöld snúllur

Kv ólöf

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 10:59:26 / svanhrol

Árshátíðin......

Jæja kæru bekkjarfélagar!!

Það líður að árshátíðinni okkar og eins og áður hefur komið fram hef ég boðist til að halda partý áður en við förum á Broadway. Þið vitið að það er skyldumæting og ég hlusta ekki á neinar afsakanir :lol::lol::lol::lol:

Allavega þá á ég heima í Katrínarlind 1 í Grafarholti, bjalla 302. Eigum við ekki að segja að mæting sé um fimmleytið. Hlakka til að sjá ykkur

Svanhildur

» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 28